Belgía
er 30.514 km² með u.þ.b. 10 milljónir íbúa.
Höfuðborgin er Brüssel. Landið skiptist í 9 sýslur
og 43 hreppa. Tungumálasvæðin eru þrjú:
Flandern, Vallónía og Brüssel. Hver
hluti hefur verulega sjálfstjórn í eigin málum.
Flestir íbúa Belgíu eru katólskir. Samkvæmt
stjórnarskránni frá 1831 er Belgía þingbundið konungsríki, þar sem þjóðhöfðingjanum er ætlað löggjafarvald ásamt þinginu
(Baldvin I frá 1951; fæddur 1930).
Í raun kemur konungur aðeins fram fyrir hönd landsins
opinberlega. Þingið
starfar í tveimur deildum, efri deild (187 þm.) og neðri deild (212 þm).
Þingmenn eru kosnir til fjögurra ára í senn
og gætt er jafnvægis í ríkisstjórn milli tungumálahópanna.
Í höfuðborginni Brüssel (tveggja mála borgin; flæmska og franska)
eiga nokkrar alþjóðastofnanir aðsetur, s.s. yfirstjórn ESB,
Kjarnorkustofnun Evrópu og aðalskrifstofur NATO.
. |