Suður-Afríka
er syðsta ríkið á meginlandi Afríku, 1.219.090 km² að flatarmáli.
Bein lína frá landamærunum í norðri til syðsta odda landsins
er 1650 km löng og mesta vegalengd frá vestri til austurs er svipuð.
Norðvestan landamæranna er Namibía, Bótswana og Zimbabwe í norðri
og Mozambique og Swaziland í norðaustri og austri.
Lesótó er sjálfstætt, þingbundið konungsríki, sem er umlukt
Suður-Afríku á alla vegu í austurhluta landsins.
Strandlengja Suður-Afríku liggur meðfram Indlandshafi að suðaustanverðu
og Atlantshafi að suðvestanverðu.
Höfuðborgir landsins eru þrjár, Pretoria (framkvæmdavaldið),
Höfðaborg (Cape Town; löggjafarvaldið) og Bloemfontein (dómsvaldið).
Árið
1994 var fjórum upprunalegum héruðum landsins, Góðrarvonarhöfða,
Orange Free State, Transvaal og Natal, skipt í níu héruð:
Vesturhöfða, Norðurhöfða, Austur-Free State, Free-State, Norðvestur-Free
State, Gauteng, Austur-Transvaal, Norður-Natal og KwsZulu-Natal.
Austur-Transvaal var þá skirt Mpumalanga.
Íshafseyjarnar Prince Edward og Marion í Indlandshafi, u.þ.b.
2200 km suðaustan Höfðaborgar, tilheyra Suður-Afríku.
Landið átti Walvis Bay, u.þ.b. 660 km norðan Orangeárinnar,
sem látinn var af hendi til Namibíu árið 1994.
.
|