Orange-áin
kemur upp í vesturhlíðum Drakensbergfjalla í Lesotho og rennur aðallega
til suðvesturs inn í Suður-Afríku, þar sem hún snýr til norðvesturs
og myndar landamærin milli ríkjanna Free State og Austurhöfða og síðan
Free State og Norðurhöfða. Áin
streymir áfram til vesturs í gegnum norðurhluta Norðurhöfða og
myndar síðan landamærin milli hans og Namibíu.
Áin rennur út í Atlantshafið í Alexanderflóa.
Hún er u.þ.b. 2090 km löng og aðalþverá hennar er Vaal.
|