Vinsældir
stuttra ferða til ýmissa borga, svæða og landa víða um heiminn fara
vaxandi.
Nokkuð hefur skort á aðgengilegar upplýsinga um viðkomandi
heimshluta, þannig að þátttakendur í ferðunum hafa orðið að leggja á sig
leit að þeim með mismunandi árangri.
Það er hálfklént, að geta ekki undirbúið sig nægilega vel til að geta
notið utanlandsferða eins vel og kostur er vegna skorts á upplýsingum.
Núna þarf ekki annað en að kalla fram viðkomandi upplýsingar á vefnum og
prenta þær til að taka með í ferðalagið og þræða áhugaverða staði af
hjartans lyst.
Víða eru tenglar við vefsetur landa og staða, svo að óþarfi er að
leita annars staðar til að kynna sér þá nánar og
viðburði, sem eru á döfinni. Þessir tenglar
veita m.a. aðgang að hótelum, veitingastöðum, verzlunum, næturklúbbum,
golfvöllum og annarri afþreyingu, sem víða er hægt að panta beint líkt
og á ferðavísi nat.is um Ísland.
Þá er bara að hefja undirbúninginn og kynna sér næsta heimshluta, land,
borg eða landshluta.
TÖLFRÆÐI og FRÉTTIR á ENSKU
um ÍBÚA JARÐAR
HAGTÖLUR 200 LANDA
Stiklað með
icelandonline.is |
|