Fylkið
er svo stórt, að það jók heildarflatarmál BNA um fimmtung.
Það er tvöfalt stærra en Texas, sem var áður stærsta fylkið.
Þriðjungur Alaska er skógi vaxinn og jöklar þekja u.þ.b.
74.590 km². Malaspinajökull er stærri en Rhode Island fylkið.
Nafnið Alaska er úr máli
Aleut inúítanna (alaxsxaq = landið við sjóinn).
Fylkið er oft kallað „Fylki miðnætursólarinnar” eða síðustu
landvinningar BNA. Þeir,
sem gagnrýndu innanríkisráðherrann fyrir að kaupa það af Rússum,
kölluðu fylkið „Heimsku Sewards” eða „Kæliskápinn hans
Sewards”. Andstæðingar
hans álitu, að þessi kaup yrðu einungis byrði á Bandaríkjamönnum. |