Kenja
er 582.644 km² að flatarmáli og þar af þekja stöðuvötn 13.600 km².
Íbúafjöldinn voru u.þ.b 26 milljónir 1996 og þar af bjuggu 1,5 m. í
Nairobi. Tungumálin eru
kiswahili og enska. Trúarbrögð: 30% hallast að trú forfeðranna, andatrú, en 60% eru
kristin og 10% aðhyllast islam. Höfuðborgin
er Næróbí.
Hæð landsins nær
allt frá sjávarmáli upp í 5.200 m. Breytileiki hita, úrkomu og rakastigs er gífurlegur.
Loftslaginu er í grófum dráttum skipt eftir helztu landslagssvæðunum.
Sigdalurinn mikli og miðhálendið:
Loftslagið á þessu svæði líkist einna helzt svissnesku sumri,
ferskt og örvandi. Það er
temprað í misgenginu og norrænt á jöklum Kilimanjaro. Næróbí
er í 1661 m hæð.
Úrkoman
í júlí er 20 mm að meðaltali. Hámarksúrkoman,
750 - 1000 mm, fellur aðallega á tímabilunum marz til maí og oktober
til desember. Sólskin er
mest í febrúar, 9½ klst., og minnst í apríl, 5 klst.
Lágmarkshiti er 10 - 14°C og hámarkshiti er 22 - 26°C.
Enska
er kennd í skólum um allt land, svo að það er hægt að bjarga sér
hvar sem er. Í strandhéruðunum hafa margir innfæddir lagt á sig að læra
þýzku, frönsku og ítölsku vegna þess, hve margir ferðamenn koma frá
þessum löndum.
Kenja er meðal fremstu útflytjenda á gæðakaffi, tei
og ananas. Mikið er flutt út
af landbúnaðarvörum, blómum, sísal o.fl.
Ferðaþjónustan er mikilvæg til öflunar erlends gjaldeyris.
Verzlun, banka- og tryggingastarfsemi og samgöngur skipa líka
veigamikinn sess í efnahagslífinu.
AÐVÖRUN!
Næróbí er hættuleg borg. Svæðin kringum River Road og
Uhuru-almenningsgarðinn eru fræg fyrir líkamsárásir allan
sólarhringinn.
Svipað gerist einnig í Mombasa, einkum á ströndunum. Leiti fólk til
lögreglunnar, gerist ekkert nema gegn mútugreiðslum. Ferðamenn á leiðinni
milli Isiolo í Kenja og Eþíópíu verða að ferðast í fjölmennum hópum undir
vernd vopnaðra varða vegna hættu á árásum ræningja. Ræningjahópar eru
einnig að verki í grennd við Lamu og í norðvestur- og norðausturhlutum
landsins. Bezt er að leita upplýsinga á staðnum, því aðstæður eru
síbreytilegar.
AMBOSELI-
og TSAVO-ÞJÓÐGARÐAR
FJALLAÞJÓÐGARÐARNIR
MAASAI MARA
SIGDALURINN
MIKLI
STRANDLENGJAN |