Hið
slavneska Hvíta-Rússland var hluti Kænugarðs frá 9. öld, laut Litháen
1300-1500, síðar Póllandi og Rússlandi 1772-93.
Lýðveldið var stofnað 1919 og landið gekk í ríkjasambandið
1922. Árin 1921-1939 var
vesturhluti landsins undir yfirráðum Pólverja og það varð hroðalega
úti í síðari heimsstyrjöldinni.
Hvíta-Rússland
er sjálfstæður aðili að Sameinuðu þjóðunum.
Sjálfstæðisyfirlýsing þeirra, sem harðlínumenn studdu, er
aðallega talin eiga að koma í veg fyrir, að gamli Kommúnistaflokknurinn verði
bannaður. |