Konungsríkið
Danmörk nær líka yfir Færeyjar og Grænland, sem voru í raun nýlendur
Dana áður en þær fengu sömu réttindi og Danmörk bauð þegnum sínum
í heimalandinu.
Færeyjar eru alls 1396 km² og Grænland, sem er hluti Norður-Ameríku,
er 2.175.600 km² (þar af 1.833.900 km² jökull).
Færeyingar eiga sína eigin sögu, menningu og tungumál, sem er
hvað líkast íslenzkunni af Norðurlandamálunum.
Þeir fengu heimastjórn 1948.
Grænlendingar (inúítar) bjuggu fyrrum í mjög dreifðum byggðum
með ströndum fram og þeir eiga sér merka menningu, sögu og eigið
tungumál, sem er með öllu óskylt norrænum tungum.
Grænland fékk heimastjórn 1979. |