Við
tók tímabil sviptinga; fall Konstantínópel í hendur Tyrkja 1453
einangraði Georgíubúa frá kristnum þjóðum í vestri og Tyrkir og
Rússar herjuðu á þjóðina næstu aldir.
Á 18. öld náðu Rússar yfirráðum í Georgíu.
Undir stjórn Rússa náði efnahagur og menning Georgíubúa sér
á strik en á síðari hluta 19. aldar óx óánægja með stjórn
zarsins.
Árið
1917 lýsti Georgía yfir sjálfstæði en lýðveldið var fyrst viðurkennt
af bandamönnum árið 1921. Sovézkar
hersveitir lögðu landið undir sig sama ár og Georgía varð sjálfstætt
Sovétlýðveldi 1936.
Georgíumenn
hafa horft til dýrðardaga ríkisins á 13. öld og sjálfstæðisins
1917-1921. Upp úr 1985 fór
að bera á kröfum um sjálfstæði en þeim var mætt af hörku í
Moskvu, sem beitt hervaldi 1989 í Tíblísí.
Georgía hefur óskað sjálfstæðis. |