Dóná
er mikilvægasta fljót landsins. Hún
myndar austurhluta landamæranna að Serbíu og að mestu landamærin að
Búlgaríu. Svæðið meðfram
neðri hluta árinnar, austan Járnhliðsins við Turnu Severin, og ósar
hennar eru mjög mýrlendir. Aðrar
stórar ár, sem renna allar til Dónár, eru Mures, Prut, Olt og Siret.
Víða eru lítil stöðuvötn til fjalla en hin stærstu eru ísölt
lón á strönd Svartahafs (Razelmvatn er stærst). |