Nafn
fylkisins er komið úr indíánamáli og það er líka kallað „Land tækifæranna”.
Flatarmál þess er 137.481 km² (27. stærsta fylki BNA).
Íbúafjöldinn 1997 var u.þ.b.2,3 milljónir ( 16% negrar).
Höfuðborgin er Little Rock og aðrar helztu borgir eru Fort
Smith, North Little Rock, Pine Bluff og Hot Springs.
Arkansas varð 25. fylki BNA 1836.
Landbúnaður: Sojabaunir, hrísgrjón, kvikfjár- og fuglaeldi.
Námuvinnsla. Vaxandi iðnaður: Vinnsla
timburs, olíu og báxíts. Jarðefni:
Olía, gas, báxít (rúmlega 90%
framleiðslunnar í BNA), mangangrýti, bróm og eini fundarstaður demanta
í BNA til 1949.
Ferðaþjónustan er mikilvæg:
Heilsubótarstaðir, þar sem er jarðhiti, fjöll og vötn. |