Skoðunarvert:
Hot
Springs-þjóðgarðurinn.
Ancient
Burial Grounds
eru 23 km norðan Nashville. Þar
eru forsögulegir grafreitir og safn.
Arkansas
Post-þjóðarminnismerkið
við neðri hluta Arkansasárinnar. Þar
var fyrsta byggð hvítra manna 1686 vestan Mississippifljótsins, utan Nýja-Mexíkós.
Demantagígur
er 4 km suðvestan Murfreesboro, eina demantanáma BNA.
Þar er gestum leyft að leita að demöntum.
Fayetteville
er stór ferðamanna- og háskólabær (u.þ.b. 14.000 stúdentar).
Mountain
View er meðalþorp norðan Ozark Folk Center almenningsgarðsins.
Blanchard Spring Caverns eru dropasteinahellar 22 km norðavestan
þess.
Pea
Ridge National Miliitary Park
er 16 km norðan Rogers. Þar varð blóðug orrusta í borgarastríðunu árið 1862.
Pine
Bluff er lítil iðnaðarborg, stofnuð 1819.
Sagan segir, að þar hafi fyrsti neist borgarastríðsins verið
tendraður.
Stuttgart
er
bær, sem svabinn G.A. Bürkle stofnaði 1880 (hrísgrjón og endur). |