Arkansasáin er stór
þverá Mississippifljótsins, 2334 km löng, og kemur upp í Mið-Colorado
í Sawatch-fjallgarðinum, sem er hluti Klettafjalla. Efstu upptök hennar þar eru í 4270 m.y.s. og hún hefur að
mestu austlæga stefnu og er mjög straumhörð á leið sinni niður úr
fjöllunum, þar sem hún hefur grafið sér djúp gljúfur, s.s. Royal
Gorge. Á leið sinni um sléttur Kansas breiðir hún úr sér og
rennur mun lygnari þar til hún kemur til Oklahoma.
Þar renna til hennar tvær þverár, Cimarron- og Kanadaáin.
Á einum stað í Kansas sveigir áin til norðurs á litlu svæði
en rennur ella að mestu til suðausturs þar til hún hverfur í
Mississippifljótið skammt ofan Arkansasborgar.
Vatnsborð árinnar er mjög misjafnt og nokkrar stíflur hafa
verið byggðar til að jafna rennslið, til áveitna og raforkuframleiðslu.
Einhver tilkomumesta stíflan er kennd við John Martin í Suðaustur-Colorado
(1948). Á áttunda áratugnum
varð áin skipgeng alla leið til Tulsa í Oklahoma. |