Kirgízar
eru múslimskir hirðingjar af túrkman-mongólskum uppruna, sem
fluttust til landsins á 16. öld.
Þeir komust undir yfirráð Rússa á miðri 19. öld, þegar Rússar
og kínverjar sömdu um landamæri.
Kirgízar gerðu fyrst misheppnaða uppreisn gegn Rússum 1898, aðra
og alvarlegri 1916, þegar um 150.000 manns létu lífið.
fyrstu árin eftir rússnesku byltinguna hafði enginn fullkomin
yfirráð í Kirgizíu og nokkuð var um skæruhernað á hendur Rússum.
Árið 1924 varð Kirgizía sjálfstætt lýðveldi í sovjezka ríkjasambandinu.
Kyrgyzstan
var síðust Sovétlýðveldanna til að lýsa yfir efnahagslegu sjálfstæði.
Alvarlegar þjóðernisdeilur urðu í landinu í júni 1991, þegar
rúmlega 300 voru drepnir. |