Oklahoma er eitt vestmiðsuðurfylkjanna.
Norðan þess er Colorado og Kansas, Missouri og Arkansas í
austri, Texas í suðri og Texas og Nýja-Mexíkó í vestri.
Rauðá myndar mestan hluta suðurlandamæranna.
Flatarmál þess er 181.013 km², sem gerir það að 18. stærsta
fylki BNA. Íbúafjöldinn 1197 var rúmlega 3 milljónir (7% negrar og
tæplega 6% indíánar).
Oklahoma er einnig kallað Skyndifylkið vegna þess að
landnemanna, sem settur þar að áður en sambandsstjórnin var
búin að opna svæðið til landnáms. Það varð 46. fylki BNA
16. nóvember 1907. Það var áður verndarsvæði indíána.
Landbúnaðurinn og námugröftur eru hefðbundnar atvinnugreinar en snemma
á tíunda áratugi 20. aldar náðu þjónustugreinar og iðnaður forskoti í
efnahagslífinu. Nafn fylkisins er úr máli choctaw-indíána, sem þýðir
rauða fólkið. Höfðingi þeirra stakk upp á þessu nafni á sjöunda
áratugi 19. aldar. Helztu borgirnar eru Oklahoma City (höfuðborgin),
Tulsa, Lawton, Norman, og Broken Arrow. |