Höfuðborgin er Concord og aðrar borgir: Manchester og Nashua.
Iðnaðarframleiðsla aðallega skór, raftæki, pappír og vefnaðarvörur.
Landbúnaðarframleiðsla aðallega fuglakjöt, egg, ávextir, dýrafóður.
Náttúruauðæfi eru aðallega grjót og sandur.
Ferðaþjónusta talsverð (veiði, og vetraríþróttir).
Canterbury
(19 km norðan Concorde; Safn um byggð Shakerfólksins, sem kom 1792).
Exeter
(mörg falleg, söguleg hús frá 18. öld; Phillips Exeter Akademían frá
1781).
Hanover
(Dartmouthháskóli stofnaður 1769).
Laconia
(iðnaðarbær og miðstöð heilsubótarsvæðis; fjöldi stöðuvatna).
Mt.
Washington (1917m; kalsasamt;
Hvítufjöll eru vinsæll sumarskíðastaður; National Forest;
fagurt landslag, mörg stór og djúp gljúfur: Crawford Notch, Dixville
Notch og Franconia Notch).
Portsmouth (hafnarborg; aðsetur sjó- og
lofthers; falleg hús frá nýlendutímanum í Strawberry Banke, sem er
útisafn).
Saint-Gaudens
National Historic Site
(í Cornish, 29 km sunnan Hanover.
Þarna bjó og starfaði myndhöggvarinn Augustus Saint-Gaudens,
1848-1907).
Santa’s
Village (Jólasveinsþorpið, 1½ km norðvestan Jefferson; skemmtigarður).
Storyland
(Söguland; skemmtigarður hjá Glen). |