Æðsti embættismaðurinn er fylkisstjóri, sem
er kosinn í almennum kosningum til 2 ára í senn án frekari
takmarkana um framboð. Forseti öldungadeildar
fylkisþingsins er varamaður hans. Framkvæmdaráð er
fylkisstjóra til aðstoðar og embættismenn þess eru kosnir
til 2 ára. Þingið kýs innanríkis-, landbúnaðar- og
fjármálaráðherra, ríkissaksóknara, formann herráðsins og
ríkisendurskoðanda, oftast í samræmi við tillögur
fylkisstjóra og framkvæmdaráðsins.
Þingið starfar í öldungadeild (24) og fulltrúadeild (400).
Þingmenn beggja deilda eru kosnir til 2 ára. Fylkið á tvö
sæti í öldungadeild sambandsþingsins í Washington DC og
ræður fjórum kjörmönnum í forsetakosningum. |