Kamerún
er þríhyrningslagað ríki á mörkum Vestur- og Mið-Afríku, 465.458
km² að flatarmáli. Að því
liggja Nígería í norðvestri, Chad í norðaustri, Miðafríkulýðveldið
í austri, Kongó (Brazzaville) í suðaustri, Gabon og Miðbaugs-Guinea
í suðri og Atlantshafið í suðvestri. Hin
fjölbreytta deigla kynþátta og þjóðerna, sem landið byggir, er að
mestu í þéttbýli og borgum landsins.
Höfuðborgin er Yaoundé.
Nafn landsins er dregið af „Rio dos Camaroes” (Rækjuá) eins
og portúgalskir landkönnuðir nefndu árósa Vouri-árinnar á 15. og
16. öld.
Nafnið Camaroes
var einnig notað um fjalllendið í nágrenni árinnar. Allt fram að lokum 19. aldar notuðu Englendingar nafnið „Cameroons”
um fjöllin og Kamerúnána.
Árið 1884 innlimuðu Þjóðverjar þetta svæði í „verndarsvæði”
sitt. |