Stjórnsetur:
Bakú. Flatarmál:
86.600 km².
Íbúafjöldi var á tíundu milljón árið 2010, Azerar 78%, Rússar
8%, Armenar 8%, aðrir 6%.
Í
Azerbajdzhan er fjölbreytilegt landslag,
láglendi er um 40% svæðisins og um helmingur landsins er í 400-1500
metra hæð. Helztu
atvinnuvegir eru
olíuvinnsla, olíuiðnaður, orkuframleiðsla og landbúnaður.
Fornleifarannsóknir
hafa sýnt
fram á, að Azerar voru mikil menningarþjóð
til forna.
Þeir voru undir stjórn Persa frá áttundu
öld f.Kr.
Arabar réðust inn í landið árið 642
og náðu því á sitt
vald. Þegar arabíska
heimsveldið leið undir lok á miðöldum, urðu Azerar, sem upphaflega
voru af írönskum stofni, fyrir auknum tyrkneskum áhrifum.
Mongólar herjuðu á landið og náðu yfirráðum
1236-1498. |