Nebraska meira Bandaríkin,

ÍBÚARNIR LAND og NÁTTÚRA SAGAN STJÓRNSÝSLA

NEBRASKA
MEIRA

.

.

Utanríkisrnt.

Booking.com

Landbúnaður:  Maís, hveiti, sorghum og sykurrófur, nautgriðir og svín.

Iðnaður
:  Matvæli, vélasmíði, nákvæmnistæki og lyf.

Jarðefni:  Jarðolía, jarðgas, kalí og vikur.

Agate Fossil Beds National Monument
er 69 km norðan Scottsbluff, þar sem hefur fundizt mikið af steingervingum.

Chimney Rock National Historic Site er 26 km vestan Bridgeport.  Á norðurbakka Platteár er keilulaga hóll með 46 metra hárri klettanál, sem var kennileiti fyrir þá, sem ferðuðust á Oregonleiðinni.

Homestead National Monument er ein fyrsta byggðin, sem var stofnuð eftir að lög um búfestu tóku gildi árið 1862, 6½ km norðvestan Beatrice.

Minden
er þorp, þar sem hægt er að sjá endurbyggða landnemaþorpið Harald Warp Pioneer Village með u.þ.b. 25 húsum og 30.000 minjum.

*Scotts Bluff National Monument er 5 km sunnan Scorrsbluff með allt að 244 m háum klettum á hægri árbakka Norður-Platteárinnar.  Þessir klettar voru líka kennileiti á Oregonleiðinni.  Upplýsingamiðstöð.

 TIL BAKA     Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir            HEIM