Albanska
nafn landsins er
Republika e Shqipërisë.
Það er á vesturhluta Balkanskagans við Otranosund.
Flatarmál þess er 28.748 km², mesta lengd frá norðri til
suðurs er 340 km og breidd 157 km. Norðvestan
þess er Montenegro (Svartfjallaland), í norðvestri er
Kosovohérða Serbíu, í austri er Makedónía og í suðaustri og suðri
er Grikkland.
Adríahafið liggur að landinu vestan- og suðvestanverðu.
Stytzta vegalengdin milli Albaníu og Ítalíu er u.þ.b. 83 km.
Landsmenn
segjast vera „saqiptarë”, sem þýðir „synir arna” og vísa til
landsins sem Saquipëria. Þeir
eru afkomendur hinna fornu illýra og hafa búið við
talsverða
einangrun og huld frá upphafi.
Ástæðurnar liggja í fjöllóttu landslagi landsins og
mörgum og flóknum þáttum,
sem snerta sögu, menningu og félagslega uppbyggingu þjóðfélagsins.
Lega landsins hefur löngum verið stikla annarra þjóða og stórvelda,
sem hafa sótt fram til landvinninga. |