Skoðunarvert
Akcadiaþjóðgarðurinn.
Bath
(hafnarborg við Keenbecá með skipasmíðastöðvum og sögulegum húsum).
Popham Beach
(Popham Memorialvirkið; óklárað frá 1861).
Baxterfylkisþjóðgarðurinn
(29 km norðvestan Millinocket í norðurhluta fylkisins; Mt Katahdin,
1605m).
Boothbay Harbor (járnbrautasafn og hafffræðistofnun).
Brunswick
(Bowdoinháskólinn, þar sem Hawthorne og Longfellow voru við nám).
Kennebunkport
(sjávarböð og sporvagnasafn).
Monheganeyja
(14 km frá ströndinni; líklegur lendingarstaður Leifs Eiríkssonar ár
1000; Humarveiði).
Mooseheadvatn
(stærsta stöðuvatn Maine, 64 km langt, 32 km breitt;
vatnaíþróttir).
Ogunquit
(afþreyingarstaður; góð sandströnd).
Passamaquoddy
(indíánasvæði 5 km norðan Eastport; u.þ.b. 1300 algonquin-indíánar).
Portland
(sjávarböð, hafnarborg; olíuleiðsla til Montreal í Kanada; hús frá
18. öld, s.s. Wadsworth-Longfellow-húsið frá 1785).
Quoddy
Head
fylkisgarðurinn
(austasti angi meginlands BNA).
Roosevelt
Campobello International garðurinn
(á Campobelloeyju 2½ km austan
Lubec; fyrrrum
sumardvalarstaður Roosevelts forseta, þar sem hann veiktist af barnalömunarveiki).
Sebagovatn
(19 km norðvestan Portland; næststærsta stöðuvatn Maine; laxarækt).
St.
Croix Island þjóðarminnismerkið
(13 km sunnan Calais; fyrsta evrópska
byggðin norðan Flórída við Atlantshafsströndina 1604).
Waterville
(Colbyháskólinn frá 1813 og gamla Halifaxvirkið frá 1754, 1½ km
austar).
Wiscasset
(listamannanýlenda með fallegum húsum frá nýlendutímanum).
York
(sjávarböð; falleg, söguleg hús, s.s. Old Goal/fangelsi frá
1720, gamla skólahúsið frá 1745). |