Comoros
er sjálfstætt eylýðveldi við norðurenda Mozambíksunds í
Indlandshafi milli Madagaskar og suðaustanverðs meginlands Afríku, u.þ.b.
290 km frá ströndinni. Meðal
eyjanna, talið frá norðvestri til suðausturs, eru Hgazidja (Grand
Comore), Mwali (Mohéli) og Nzwani (Anjouan).
Eyjan Mayotte lengra til suðausturs er franskt verndarsvæði.
Heildarflatarmál eylýðveldisins er 1862 km². |