Celle
í Neðra-Saxlandi er í 40 m hæð yfir sjó.
Íbúafjöldinn er u.þ.b. 75.000.
Celle er gömul hertogaborg við ána Aller við suðurjaðar Lüneburgerheiði.
Reglulegar og fagrar, gamlar götur með bindingshúsum í gamla
bænum í átt að höllinni. Sjónvarpsframleiðsla,
sælkerabakstur, litaverksmiðja, vélaiðnaður og vefnaður.
Mesta orkideuræktun í Evrópu.
Þýzkar og brezkar herstöðvar.
Celle er getið í skjölum árið 990 sem Kellu (byggðin við
ána). Síðari heimsstyrjöldin
olli ekki skemmdum í gamla bænum. |