Yekaterinburg
(Sverdlovsk 1924-91) er höfuðborg Sverdlovskhéraðs í Miðvestur-Rússlandi
við Iset-ána, sem er þverá Tobolárinnar, í austurhlíðum Úralfjalla.
Borgin er 1667 km austan Moskvu.
Trúarhópurinn „Gömlu trúarbrögðin” stofnaði þorpið
Shartash árið 1672 og byggði járnvinnslu í nágrenninu 1721 og árið
eftir var reist þar virki. Árið
1723 fékk þessi nýja byggð nafnið Yekaterinburg til heiðurs Katrínu
I, konu Péturs I, hins mikla. Bærinn
varð stjórnsýslumiðstöð héraðsins og enn óx hann og dafnaði,
eftir að Síberíuþjóðvegurinn var lagður í gegnum hann 1783.
Síberíujárnbrautin tengdi bæinn við aðra hluta Síberíu
eftir árið 1878.
Eftir rússnesku
byltinguna árið 1917 var Nikulás II, keisari, og fjölskylda hans líflátin
í Yekaterinburg í júlí 1918. Árið 1924 fékk borgin nafnið Sverdlovsk til heiðurs bolsévíkaleiðtoganum
Yakov M. Sverdlov en nafninu var breytt aftur 1991.
Nútímaborgin
Yekaterinburg er ein mesta iðnaðarborg Rússlands. Þar ber mest á þungaiðnaði og mikið er framleitt af vélbúnaði
fyrir málm- og efnaverksmiðjur, túrbínum, dísilvélum og kúlulegum.
Einnig er framleitt nokkuð magn af stáli.
Efna- og gúmmíiðnaðurinn er veigamikill og mikið er af léttum
iðnaði, s.s. gimsteinaskurði. Skipulag
borgarinnar í Iset-dalnum er ferningslaga.
Víða eru stíflur í ánni og mörg uppistöðulón.
Yekaterinburg
er mikilvæg miðstöð járnbrautasamgangna í Úralfjöllum.
Hún er líka menningarmiðstöð þessa svæðis með fjölda
æðri menntastofnana, s.s. A.M. Gorky ríkisháskólann (1920), tónlistarhöll,
listaskóla og skóla fyrir námuvinnslu, skógarhögg, landbúnað, lögfræði,
læknisfræði og kennaraskóla. Fjöldi
vísindastofnana er í borginni. Áætlaður
íbúafjöldi árið 1993 var 1,36 milljónir.
Yekaterinburg
also spelled
Ekaterinburg
er ein af ellefu borgum í Rússlandi sem riðlakepni HM 2018. mun
fara fram
Ísland er
fámennasta landið í sögunni sem tryggir sér sæti á lokamóti HM
í knattspyrnu karla (2018) eftir 2:0-sigur á
Kósóvó á Laugardalsvelli 9. oktober 2017.
Strákarnir dvelja hótel Nadezhda í bænum Gelendzhik við
Svartahafið á meðan HM
stendur yfir.
|