Madeira er oft nefnd skrúðgarður
Atlantshafsins og ekki að ástæðulausu.
Eyjan liggur úti fyrir norðvesturströnd Afríku, 978 km suðvestur
af Lissabon og tilheyrir Portúgal. Madeira
er lítil eyja, 741 km². Mesta
lengd hennar er 57 km og mesta breidd 22 km.
Hún býr yfir ótrúlegri náttúrufegurð, er skógivaxin milli
fjalls og fjöru, en undirlendi er lítið.
Því teygir byggðin sig upp fjallahlíðarnar ásamt suðrænum
aldingörðum. á eyjunni rísa
tignarleg fjöll og er hæst þeirra Pico Ruivo, 1861 m.y.s.
Gróðursæld er óvíða meiri en á Madeira.
Loftslagið er mjög milt og þægilegt
allan ársins hring, þar sem hitastigið er á bilinu 17°-28°C.
Heitast er á tímabilinu ágúst til október. Íbúafjöldinn
er u.þ.b. 300.000. Þar af býr helmingurinn í höfuðborginni Funchal, sem er
á suðurhluta eyjarinnar. Snyrtimennsta
er íbúum Madeira í blóð borin og það vekur mikla undrun hjá ferðamönnum,
hve eyjan er hrein og allt snyrtilegt.
Því skal engan undra, er sækir Madeira heim, að höfuðborg
hennar hefur verið valin snyrtilegasta borg Suður-Evrópu (1991-1994). |