Cartagena
er borg á Karíbaströnd Kólumbíu í 4 m hæð yfir sjó.
Íbúafjöldinn er u.þ.b. 800.000 og fólkið talar spænsku.
Hinn
nýi Ernesto-Cortissoz flugvöllur liggur í 10 km fjarlægð frá
borginni. Greiðasta leiðin
þangað frá Mið-Evrópu er um Caracas
(Venezuela) og Mexíkóborg eða Aruba og Curaçao. Leiguflug eru líka tíð til Cartagena.
Skemmtiferðaskip
eru farin að stanza í höfninni á leið sinni um Karíbahafið.
Hin
síðari ár hefur straumur ferðamanna til borgarinnar aukizt, þótt
hitinn og rakastigið á fenjaskógavaxinni norðurströnd meginlandsins sé
hátt. Cartagena er höfuðstaður
Bolivarhéraðs. Hún er
mikilvægur umskipunar- og verzlunarstaður auk þess að vera ein bækistöðva
kólumbíska sjóhersins. Þar
er talsverður iðnaður, s.s. olíuefnaiðnaður, leðurvöru-, vefnaðarvöru-
og matvæla- framleiðsla.
Í borginni situr katólskur erkibiskup og þar er kunnur háskóli
(1827).

(1827). |