Vels
er hluti Stóra-Bretlands og stjórnmála-, laga- og stjórnsýslulega
sameinað Englandi.
Landið er á stórum skaga á vestanverðu Stóra-Bretlandi og nær
líka yfir eyjuna Anglesley, sem er handan mjós Menai-sundsins.
Norðan landsins er Írlandshaf, austan þess eru ensku skírin
Cheshire, Shropshire, Hereford og Worcester og að vestan eru St.
George’s-sund og Cardiganflói.
Mesta
lengd landsins frá norðri til suðurs er 220 km og frá austri til
vesturs 60-155 km.
Heildarflatarmálið er 20.766 km².
Cardiff er höfuðborgin og jafnframt stærst borga landsins og
aðalhafnarborgin.
Ferðaþjónusta
Velska
ströndin hefur verið vinsæl meðal brezkra sumarleyfisgesta allt frá
upphafi 20. aldar.
Fjöllin hafa líka heillað göngu- og fjallamenn.
Síðasta aldarfjórðung 20. aldar varð ferðaþjónustan að
einhverjum mikilvægasta atvinnuvegi landsins.
Ferðamálaráð og önnur yfirvöld, sem málið snertir, hafa
lagt aukna áherzlu á varðveizlu ósnortinna landsvæða með stofnun
þjóðgarða og friðlanda. |