Húmanisminn
og endurreisnarskeiðið voru uppgangstímar fyrir andlegt líf
borgarinnar og listir. Ferdinand I bældi niður frelsishreyfingu árið
1522 með því að taka af lífi borgarstjóra Siebenbürgen og afnam
sjálfstjórn borgarinnar 1529. Vínarbúar
vörðust árásum og umsátrum Tyrkja frá 22. september til 15.
oktober árið 1529 undir stjórn Niklas Salm greifa.
Árið 1551 komu fyrstu jesúítarnir til borgarinnar.
Frá 1559 var Vín aðsetur ríkisstjórnarinnar og frá 1612
fast aðsetur keisarahirðarinnar.
Í byrjun 17. aldar voru 25.000 íbúar í Vín.
Melchior
Khlesl, biskup frá 1598, barðist helzt gegn siðbótinni, sem
Ferdinand II bældi
endanlega niður af í 30 ára stríðinu.
Þá munaði minnstu, að Vín félli fyrir Bæheimi, Ungverjum
og Svíum í 5 skipti.
Frumbarokbyggingar einkenna tímaskeið
gagnsiðbótarinnar og rómverskra áhrifa hennar gætti mjög.
Á áratugnum 1620-30 voru stofnuð 8 klaustur í Vín.
Árið 1679 geisaði svartidauði og lagði 12.000 manns að velli
(sbr. þjóðlagið: "Ach, du lieber Augustin").
Tyrkir sátu enn á ný um Vín frá 14. júlí til 12. september 1683.
Þeir höfðu 200.000 manna lið undir stjórn Kara Mustafa
stórvesírs.
Ernst Rüdiger greifi var til varnar í borginni með 11.000 hermenn
og 5.000 sjálfboðaliða.
75.000 manna hjálparlið úr keisarahernum, frá Saxlandi, Franken,
Bæjaralandi, Schwaben og Póllandi undir stjórn Karls hertoga af
Lótringen (að nafninu til undir stjórn Johann Sobieski,
Póllandskonungs) frelsaði borgina frá Kahlenberg.
Eftir að Tyrkjaógnuninni hafði verið bægt frá þróaðist Vín í
glæsilega barokborg í samræmi við stöðu sína sem höfuðborg ríkisins.
Um 1700 voru íbúar nálægt 100.000.
Árið1686 voru fyrstu "Feuerknechte" ráðnir til starfa og 1688
voru u.þ.b. 2000 ljósker á götum borgarinnar.
Í úthverfunum, þar sem margir aðalsmenn höfðu reist sér hallir,
var reistur varnarmúr gegn uppreisnargjörnum Ungverjum að undirlagi
Eugen prins. Múrinn var
einnig tollmúr til 1893.
Árið 1703 kom þing fyrst saman.
Listir og vísindi efldust mjög.
Árið 1722 varð biskupsdæmið sett undir erkibiskup í Vín.
María Theresía (1740-1780) og Josef II (1780-1790) gerðu umbætur
á stjórnskipan og ríkisumsvifum, sem komu borginni vel, þótt hún
tapaði því, sem eftir var af sjálfsforræði sínu 1783.
Hið ástríðufulla dálæti, sem Vínarbúar höfðu á tón- og leiklist,
tengdi Gluck, Haydn, Mozart og Beetoven föstum böndum við borgina.
Í valdatíð Franz I lauk höfuðborgarhlutverki Vínar í "Hinu heilaga
rómverska ríki hinnar þýzku þjóðar".
Um 1800 voru íbúarnir orðnir 230.000.
Árin 1805 og 1809 var borgin umsetin Frökkum (Napoleon) um skamma
hríð. Metternich fursti
gerði borgina að þungamiðju evrópskra mála á Vinarfundinum 181471815
og næstu áratugi með viðbrögðum gegn hreyfingum í frjálsræðisátt svo
og þjóðernislegum hreyfingum.
Hljóm- og myndlist áttu blómaskeið (Biedermeier).
Árið 1831 var Dónárgufuskipafélagið stofnað og 1837 komust fyrstu
járnbrautarsamgöngur á (Die Nordbahn).
Veldi Metternichs leið undir lok í hinni blóðugu marzbyltingu 1848.
Á ríkisárum Franz Josef (1848-1916) fékk Vín sjálfstæði og
tækniþróun varð mjög ör.
Árið 1850 voru úthverfi Vínar, allt að hringmúrnum, innlimuð.
Núverandi svipur borgarinnar skapaðist að mestu leyti á blómaskeiði
bygginga á árunum 1858-68.
Árið 1865 var fyrsti skeðvöllurinn opnaður og árið 1873 var fyrsta
kaldavatnsleiðslan frá fjallalindunum tekin í notkun.
Íbúafjöldinn var 431.000 árið 1851 og eftir innlimun svæða 11-19
alls 1.365.000. Árið 1910
var íbúafjöldinn orðinn 2.032.000.
Að lokinni fyrri heimsstyrjöldinni átti Vín, sem var áður höfuðborg
ríkis með 50 milljónir íbúaf af 12 þjóðernum, erfitt með að viðhalda
menningarlegri stöðu sinni.
Vín varð sambandsríki árið 1920.
Afleiðingar uppgangs nazista og síðari heimsstyrjaldarinnar urðu
borginni einnig erfiðar í skauti, en lífsseiglan og undirritun
ríkissamningsins við bandamenn urðu til þess, að allir erfiðleikar
voru yfirunnir.
Í Vín eru nú ýmsar alþjóðlegar stofnanir, s.s. kjarnorkumálastofnunin
(IAEA), iðnþróunarstofnun S.þ. (UNIDO), samtök olíuútflutningsríkja
(OPEC) og alþjóðahljómlistarmiðstöð S.þ. (IMZ).
Íbúar Vínar eru að mestu af bæversku bergi brotnir og hafa lítt
blandast öðrum. Borgin
dró til sín afburðafólk á ýmsum sviðum frá Alpalöndunum og
Súdetahéruðunum.
Frankneskra og svabískra áhrifa gætti snemma. Slavar, Niðurlendingar og Ítalar, sem fylgdu hirðum
Babenbergera og þó einkum Habsborgara, sömdu sig að þýzka
menningarstílnum og frjóvguðu hann.
Á þessum grunni þróaðist smekkur Vínarbúa fyrir formi og fegurð,
eðlilegt viðmót, forvitni og glaðvær lífsstíll, sem gat einnig tekizt
á við mótlæti. Í
lifsgleði Vínarbúa er að finna jafnvægi milli hins andlega og
veraldlega. Fyndni
Vínarbúa er hvöss, en ekki banvæn.
Hin nánu tengsl borgarinnar við náttúruna og atvinnulíf koma fram í
fari íbúanna og líka í listinni.
Eitt einkenni Vínarbúa er að hafa allt á hornum sér og nöldra
mikið ("Das Raunzen" = nörgeln). |