Simo hefur langa
reynslu af ferðum með ferðamenn. Hann talar góða ensku, frönsku,
hollensku, arabísku og berbísku gefur góðar leiðbeiningar um staði,
verslanir, verð og fleira. Svo er hann klár og hefur húmor. Hann getur
útvegað gistingu í fjölbreyttum gæða- og
verðflokkum, en einnig sækir hann gjarnan og
skilar ferðamönnum á hótel þeirra sé þess óskað. Hann býður upp á
ferðir, sem eru persónulegri en almennt er
boðið upp á. Þær eru ögn dýrari, en mun meira
gefandi en típískar "skutlferðir með ljósmynda- og verslunarstoppum".
Hann getur samt útvegað slíkar ferðir með samstarfsaðilum sínum.
Ferðirnar eru gjarnan gerðar út frá Marrakech: Eyðimerkurútilega á bíl
og kameldýri, Ourika Valley og aðrir staðir í Atlasfjöllum, Essaouira
og aðrir bæir á vesturströndinni. Einnig má koma með sérstakar óskir
varðandi aðra staði og / eða lengri ferðir.
Einstaklingar: Simo býður upp á 2-3 daga ferðir fyrir allt að 4
farþega. Um persónulegar ferðir er að ræða. Farið á fólksbíl og
stoppað þar sem gestur óskar og eins lengi og hann vill. Gisting við
einfaldar en þó öruggar aðstæður svo sem tjöld eða herbergi í þorpum
en sé ósk um annað má alltaf ræða það. Máltíðir geta verið innifaldar
sé þess óskað og fara þá fram á veitingastöðum eða heimatilbúið, hann
er góður kokkur.
Litlir hópar: Möguleiki á að skipuleggja ferðir
á stærri bíl samkvæmt eftirspurn og þá e.t.v. í samstarfi við
samstarfsaðila.
Fjölskylda Simo rekur lítið, ódýrt gistiheimili
- Hotel Dar Youssef - sem er í Medina, alveg við Djemma
El Fna í Marrakech. Það er einfalt en snyrtilegt og nóttin kostar
1300-2000 krónur fyrir 2-3ja manna herbergi, hægt er að fá herbergi
með eða án snyrtingu. Hann er einnig með sambönd við mjög fínt Riad
(gistisvítur) fyrir kröfuharðari ferðamenn. Nóttin í svítu kostar um
7000 kr. Simo getur séð um bókanir.
Mohammed Sendassi (kallaður
Simo)
Sími: 00 212 (0*) 6493 8872 *Þegar hringt er
frá Íslandi er núlli sleppt . (ódýrara ef hringt er 1100 fyrst í stað
00)
Tölvupóstur:
jaaba.simo@caramail.com
- simothesimo@hotmail.fr |