Gabon
er sjálfstætt lýðveldi á miðbaug á vesturströnd Afríku, 267.667
km² að flatarmáli. Norðan
þess eru Miðbaugsgínea og Kamerún, Kongó í austri og suðri og
Atlantshafið í vestri. Fyrir
ströndinni er eyríkið Sao Tomé og principe.
Frakkar réðu því sem nýlendu, þannig að landsmenn eru enn
þá bundnir Frökkum, menningu þeirra og máli, sterkum böndum. Höfuðborg
landsins er Libreville. Aðrar
helztu borgir landsins eru Port-Gentil, Lambaréné, Moanda, Mouila, Qyem,
Franceville og Bitam. Í þessum
borgum búa u.þ.b. 40% íbúanna, en hinir búa vítt og breitt í u.þ.b.
4000
þorpum við helztu ár og þjóðvegi.
Víða í þessum þorpum búa aðeins fáeinar fjölskyldur.
Port-Gentil er miðstöð timbur- og olíuiðnaðar og Libreville
er viðskipta- og stjórnsýslumiðstöð. |