Helmandáin
á upptök sín í Koh-i-Baba vestan Kabul og rennur til suðvesturs þar
til hún nær til Seistan, landamærahéraðsins milli Afghanistan og Írans.
Þar sveigir hún til norðurs og myndar landamærin milli þessara
landa áður en hún hverfur í stórum fenjum.
Í fyrstu er hún aðeins fjallalækur og nærri Girishk rennur hún
niður á jafnsléttu. Neðan
ármótanna við Arghandab-ána í grennd við Qaleh-ye Best, sunnan
Girishk, nær hún mestu breiddinni, 275-365 m og mesta dýpi, 3,7 m.
Áin er u.þ.b. 1125 km löng. |