Szombathely Ungverjaland,
Flag of Hungary


SZOMBATHELY
UNGVERJALAND

.

.

Utanríkisrnt.

Szombathely er höfuðstaður Vas-sýslu við Gyongyös- og Perint-árnar.  Borgin er í Vas-hæðunum nærri austurrísku landamærunum.  Hún er miðstöð samgangna og iðnaðar í landbúnaðarhéraði, sem framleiðir ávexti og grænmeti.  Iðnaðurinn byggist á framleiðslu vefnaðarvörur, landbúnaðartækja, efnavöru, timburs, múrsteins, skófatnaðar og matvæla.  Þarna er víða að finna merki um veru Rómverja og sumt er til sýnis í Borgarsafninu, sem er í 18. aldar biskupshöll.  Rómverjar stofnuðu byggðina árið 48 sem Samaria (Sabaria) og hún varð höfuðstaður Pannonia-héraðs.  Þarna var Lucius Severus lýstur keisari árið 193.  Áætlaður íbúafjöldi 1988 var rúmlega 87 þúsund.

 TIL BAKA        Ferðaheimur - Garðastræti 36 - 101 Reykjavik - info@nat.is - Heimildir         HEIM