Chiemvatn
í Bæjaralandi er 82 km² og þar með stærsta vatn Bæjaralands.
Það er 15 km langt, 5 km breitt og 73 m djúpt.
Jökulgrafið. Vinsæll
bað-og vatnaíþróttastaður. Í
Chiemvatni eru þrjár eyjar, Herreninsel (250 ha) með höllinni
Herrenchiemsee, sem Lúðvík II lét reisa með Versali að fyrirmynd
(1878-85). Þar eru margir
skrautsalir, þar á meðal 98 m langur speglasalur, þar sem haldnir
eru hljómleikar á sumarkvöldum við kertaljós, Fraueninsel (8 ha;
nunnuklaustur Benediktína; stofnað á 8.öld) og Krautinsel,
sem er minnst og óbyggð.
Prien
er stærst þorpa við hið vinsæla vatn. |