Bielefeld
í Nordrhein-Westfalen er í 115 m hæð yfir sjó.
Íbúafjöldi er u.þ.b. 320.000.
Bielefeld er við mikilvægt fjallaskarð í Teutoburgerskógi.
Ýmiss konar iðnaður: Vefnaður,
matvælaframleiðsla, saumavélar, reiðhjól, búðarkassar, bókhaldsvélar,
verkfæragerð og lyfjagerð, prent- og umbúðaiðnaður.
Háskóli síðan 1969. Bielefeld
var fyrst getið 1015. Hansaborg
frá lokum 14. aldar. Tilheyrði
Prússlandi frá 1647. Línvefnaður
frá 1678 skaut fótum undir velmegun borgarinnar. |