Allgäu
í Bæjaralandi og Baden-Württemberg er fjöllótt og hæðótt
foralpasvæði með setlagahryggjum og jökuldölum á milli Bodenvatns
og Lechdalsins. Tindar
Kalkalpanna rísa tignarlega á landamærum Bæjaralands og Tíról.
Hinn hæsti, Krottenkopf, er 2.657 m hár.
Fagrar tjarnir og vötn, mýrar og skógar, iðjagrænar
fjallaengjar og hrein fjallaþorp.
Mikið um ferðamenn sumar og vetur.
Allgäu
er þekkt fyrir góðar mjólkurafurðir.
Mikið um heilsuböð, leirböð og ölkelduböð.
Helztu bæir eru: Kempten,
Oberstdorf, Füssen, Schwangau, Wangen og Augsburg.
**Kastalarnir
Neuschwanstein og Hohenschwangau.
*Þýzka Alpaleiðin liggur þvert í
gegnum Allgäu syðst og aðeins norðar er grein af efri svabnesku
barokleiðinni.
*Rómantíska
leiðin endar í Füssen. |