Pardubice er borg í Austur-Bæheimi
við Elbu. Helztu framleiðsluvörur
hennar eru líkjör, farartæki, iðnaðarvélar, hreinsuð olía og skófatnaður.
Borgin er miðstöð hestaræktar og veðreiða.
Hún er meðal elztu borga landsins og þar eru m.a. 13. aldar
kirkja og mörg velvarðveitt 16. aldar byggingar.
Áætlaður íbúafjöldi 1987 var tæplega 95 þúsund.
|