Tælandsflói eða Síamsflói gengur inn úr Suður-Kínahafi
milli Malæjahöfða í vestri og meginlands Suðaustur-Asíu í norðri og
austri.Að honum liggja Tæland, Kambódía og Víetnam.Chao Phraya-áin rennur í hann norðanverðan.Bangkok, höfuð- og aðalhafnarborg landsins, er ofar við ána.
Mynni flóans er 360 km breitt og dýpið er alls staðar innan við 200 m.