Phra Nakhon Si Ayutthaya
eða
Ayuthia er borg við Chao Phraya-ána í suðurhluta Tælands í grennd
við Bangkok. Hún er
mikilvæg miðstöð mikils hrísgrjónaverzlunar.
Hún var höfuðborg Síams frá 1350- 1767, þegar Búrmamenn lögðu
hana í rust og Bangkok tók við höfuðborgarhlutverkinu.
Þarna eru nokkur stórkostleg búddahof frá tímum fyrir búrmísku
innrásina og 16. aldar höll, sem var byggð á nærliggjandi eyju sem
sumardvalarstaður konunganna. Áætlaður
íbúafjöldi árið 1992 var 57.300. |