St Gallen, höfuðborg samnefndrar
kantónu er í 670 m hæð yfir sjó.
Hún var biskupssetur frá 1846 og er í þröngum hádal
Foraplanna, sem eru þar sundurgrafn-ir af ótal ám og lækjum (Goldach,
Steinach, Sitter o.fl.). Borgin
er viðskiptamiðstöð Norðaustur-Sviss.
Þar er verzlunarháskóli, iðnskólar og fleiri menntastofnanir.
St. Gallen heitir eftir trúboðanum
Gallusi, sem var einsetumaður á staðnum árið 612. Upp úr bústað hans óx Benediktínaklaustur.
Skóli og bókasafn þess gerðu það að mesta menningarsetri
í Norður-Ölpunum. Bærinn
óx úr smábyggð handiðnaðarmanna umhverfis klaustrið og losnaði
undan valdi þess á 15. öld. Vadian,
borgarstjóri, innleiddi siðbótina árið 1524.
Á 16.-18.öld óx velmegun vegna léréftsiðnaðar.
Glitsaumur þróaðist frá 18. öld og vélar til þeirrar iðju
voru fundnar upp og smíðaðar þar.
Vefnaðarsafnið er áhugavert.
Fleiri iðnfyrirtæki spruttu upp, s.s. járniðnaður.
Áhugavert er að skoða *klaustrið og stiftbókasafnið. |