Formentera
(93 km²) er handan 4 km breiðs sunds milli hennar og Ibiza og hún er
minnst Baleareyja, sem eru í byggð.
Nokkrar vindmyllur eyjarinnar eru enn þá í gangi og talsvert
er um akuryrkju og saltvinnslu.
Höfuðstaður eyjarinnar er San Francisco Javier.
Baðströndin Playa de Mitjorn (4 km) er á suðurströndinni og
Playa d’es Pujols er á norðurströndinni.
Hæsti punktur eyjarinnar (192m), La Mola, á furuvöxnum
austurhlutanum býður gott útsýni allt til Íbiza.
Í austurhlíðunum er Nuestra Señora del Pilar með kirkju og
vita á höfðanum Punta de la Ruda. |