Mykolayiv (Nikolayev) er höfuðborg samnefnds héraðs í Suður-Úkraínu við
ármót Suður-Bug og Ingul. Hún er mikilvæg hafnarborg við Svartahaf og
höfn hennar er haldið opinni á veturna. Þar eru miklar
skipasmíðastöðvar og framleiðslan er landbúnaðarvélar og byggingartæki.
Borgin var stofnuð árið 1788 í grennd við forna, gríska byggð og varð að
flotastöð Rússa. Herseta Þjóðverja á árunum 1941-44 olli miklum skemdum.
Áætlaður íbúafjöldi árið 1991 var 511 þúsund. |