Makiyivka (Makeyevka) er mikil iðnaðarborg í Donets’k kolalægðinni í
Suðaustur-Úkraínu. Þar eru koksverksmiðjur og stálver og málmvinnslur.
Hún var stofnuð sem Dmitriyevsk árið 1899 en fékk núverandi nafn 1931.
áætlaður íbúafjöldi árið 1990 var 427 þúsund.