Kherson,
höfuðborg samnefnds héraðs, er mikilvæg hafnarborg við ána Dnepr í
grennd við Svartahafið. Meðal þess, sem borgarbúar framleiða, eru skip,
olíuvörur, baðmullardúkur og matvæli. Líklega var þarna grísk nýlenda í
fornöld en stjórnvitringurinn Grigory Potemkin stofnaði borgina árið
1778 sem virki og höfn. Grafhýsi hans er í dómkirkjunni. Árið 1783 var
fyrstu herskipum rússneska Svartahafsflotans hleypt af stokkunum í
borginni. Áætlaður íbúafjöldi árið 1990 var 361 þúsund. |