Shymkent eða Chimkent er höfuðborg samnefnds héraðs í Kazakhstan. Hún
er miðstöð járnbrauta og menningar og verksmiðjur hennar framleiða m.a.
sink, verkaðar karakúlgærur, vefnaðarvöru, matvæli og lyf. Tatarar
stofnuðu borgina á 12. öld sem viðkomustað úlfaldalesta, sem ferðuðust
milli Mið-Asíu og Kína. Rússar tóku borgina 1864 og vöxtur iðnaðar
hófst á fjórða áratugi 20. aldarinnar. Áætlaður íbúafjöldi árið 1990
var 401 þúsund. |