Öskemen
(fyrrum Ust-Kamenogorsk) er hafnarborg og samgöngumiðstöð í Norðaustur-Kazakhstan
við ármót Irtysh og Ulba. Verksmiðjur borgarinnar framleiða aðallega
sink, titan, mangan, vélbúnað og efnavöru. Hún var stofnuð sem
útvarðstöð rússneska hersins árið 1720 og fékk nafið Ust-Kamenogorsk.
Núverandi nafn fékk hún eftir að Kazakhstan varð sjálfstætt lýðveldi
árið 1991. Áætlaður íbúafjöldi árið 1990 var 330 þúsund. |