Bat'umi eða Batumi er hafnarborg nærri landamærum
Tyrklands við Svartahaf í Suðvestur-Georgíu. Hún
annast olíuútflutning frá Baku í Azerbaijdzhan, þaðan sem
olían kemur um stóra leiðslu. Þarna eru stórar
olíuhreinsunarstöðvar, skipasmíðastöðvar, matvælaframleiðsla
o.fl. Jaðartrópískt loftslag, góðar baðstrendur og
fallegt landslag laðar til sín fjölda ferðamanna. Í
fornöld var þarna grísk byggð. Ottómanatyrkir réðu
borginni frá 16. öld til 1878, þegar Rússar fengu hana eftir
Rússnesk-tyrkneska stríðið. Áætlaður íbúafjöldi árið
1990 var 137 þúsund. |