Löggjafarþing Azera heitir Mejlis. Þar starfa 300 þingmenn, sem eru
kosnir til fimm ára í senn. Samkvæmt stjórnarskránni er forsetinn æðsti
maður landsins. Hann skipar forsætisráðherra, sem myndar ríkisstjórnir
með samþykki þingsins. Í október 1991 skipaði þingið 50 manna
löggjafarráð, þjóðarráðið, sem hluti þingmanna á sæti í. Það leysti upp
þingið eftir hallarbyltinguna 1992. Landið er meðlimur í CIS
(Commonwealth of Independent States), Samtökum sjálfstæðra ríkja. |