Grampian er
fjalllendi, sem teygist þvert yfir Mið-Skotland, á milli
Caledonian-skurðar og Clyde-dalsins.
Þar eru stór heiða- og mýraflæmi og hæstu tindar eru Ben
Nevis (1.335 m), Ben Macdhui (1.302 m).
Aberdeen er helzta borgin á svæðinu.
Perth
(42.000 íb), fyrrum höfuðborg Skotlands og vettvangur margra sögulegra
atburða, oft kölluð The Fair City'við ána Tay.
Kirkja St. Johns er frá 15. öld.
Perth var höfuðborg fram á 15. öld en samt er þar fátt um
gamlar byggingar. |