Oradea er miðstöð
samgangna járnbrauta og verzlunar í vínræktarhéraði við Crisul
Repede-ána í norðvestanverðri Rúmeníu og iðnaðarborg (vefnaður,
skór, fatnaður, matvæli, gler, verkfæri og landbúnaðarvélar).
Byggð í Oradea hefur staðið síðan um 300 f.Kr. Meðal áhugaverðra staða í borginni eru nokkrar kirkjur, s.s.
sóknarkirkjan með jarðneskum leifum Oadislas I, konungs Ungverjalands,
sem gerði borgina að setri rómversk katólsks biskups árið 1080.
Ungverjar afhentu Rúmenum Oradea eftir fyrri heimsstyrjöldina
en hersátu hana í síðari heimsstyrjöldinni.
Áætlaður íbúafjöldi árið 1989 var 225 þúsund. |